Gjöf handa veiðimanninum

Elliðaár – veiðikort í ramma yfir sófa

Veiðimenn eiga sína á. Þeir þekkja hvern hyl og hverja beygju og tala um hana allt árið. Kort af ánni á vegginn heima er gjöf sem þeir skilja strax.

Veiðikort: áin með fossum, bæjum og örnefnum

Veiðikortin sýna veiðisvæðið með fossum, bæjunum við ána og örnefnunum í kring. Vinsæl eru Elliðaár, Laxá í Aðaldal og Ytri-Rangá.

Árlína: áin ein og sér

Árlínurnar eru einfaldari. Þar er aðeins áin sjálf, frá upptökum að ósi, ásamt helstu lækjum sem renna í hana. Þær eru látlausar og passa víða, til dæmis Laxá í Aðaldal, Norðurá, Grímsá, Langá og Elliðaár.

Allar árnar, bæði veiðikort og árlínur, eru í safninu Veiðiár.

Ef áin er ekki á listanum

Við eigum kort af nær þrjátíu veiðiám. Ef áin hans er ekki þar geturðu pantað Þitt eigið kort og við teiknum hana. Þú færð próförk áður en kortið er prentað.

Stærð og rammi

Kortin fást í A4, A3 og 50 × 70 cm. Langar ár njóta sín best í A3 eða 50 × 70. Rammi fylgir ekki. Sjá nánar um stærðir og ramma.

Síðasti pöntunardagur fyrir jól er 22. desember.