Norðurá – árlína
Verð með VSK. Rammi fylgir ekki. Sending með Dropp frá 890 kr., frí á afhendingarstað ef pantað er fyrir meira en 12.000 kr.
Prentað eftir pöntun
Gögn frá Landmælingum Íslands
Passar í staðlaða ramma
Ein vinsælasta laxveiðiá landsins, um Norðurárdal í Borgarfirði.
Áin sjálf og helstu lækirnir sem renna í hana, ekkert annað. Ein lína sem breikkar niður að ósnum. Látlaus og falleg mynd handa veiðimanninum og þeim sem eiga sinn stað á bakkanum. Fæst í sex litum og þremur stærðum.
Um kortagögnin
Hæðarlínur og skuggamyndun eru reiknaðar úr hæðarlíkani Landmælinga Íslands (ÍslandsDEM). Jöklar, vötn, ár og örnefni koma úr IS 50V-gagnagrunni Landmælinga og vegir og gönguleiðir úr OpenStreetMap. Heimilda er getið á hverju korti.
Stærðir og prentun
A4 (21 × 29,7 cm): fallegt í 30 × 40 cm ramma með kartoni. Hentar á ganginn, í hillu eða í hóp með fleiri myndum.
A3 (29,7 × 42 cm): fallegt í 40 × 50 cm ramma með kartoni. Góð stærð yfir skrifborði eða kommóðu.
50 × 70 cm: passar beint í 50 × 70 cm ramma. Nýtur sín yfir sófanum eða skenknum.
Ráð: hengdu myndina svo neðri brún rammans sé 20–25 cm ofan við sófabakið eða skenkinn. Á berum vegg er miðja myndarinnar fallegust í um 150 cm hæð.
Plakatið er prentað eftir pöntun og passar í staðlaða ramma. Rammi fylgir ekki.
Afhending og skil
Plakatið er sent upprúllað í sterkum hólki. Sending með Dropp: á afhendingarstað frá 890 kr. eða heim að dyrum frá 1.410 kr. Sending á afhendingarstað er frí ef pantað er fyrir meira en 12.000 kr. Endanlegt verð kemur fram í körfunni.
Þú getur fallið frá kaupum innan 14 daga. Sjá nánar í afhendingu og skilmálum.