Dæmi um eigið kort: Ljóst, Okkurgulur

Þitt eigið kort

A3 (29,7 × 42 cm) / Ljóst / Okkurgulur
15.900 kr.
Fara í vöruupplýsingar
Dæmi um eigið kort: Ljóst, Okkurgulur

Þitt eigið kort

15.900 kr.

Verð með VSK. Rammi fylgir ekki.

Stærð
Litaþema
Áherslulitur

Segðu okkur frá kortinu

Þú færð próförk í tölvupósti. Ekkert er prentað fyrr en þú hefur samþykkt hana.

Gönguleiðin sem þið genguð saman, sumarbústaðurinn, fjallið sem þú kleifst eða gatan sem þú ólst upp við. Við teiknum kortið úr sömu landslagsgögnum og öll okkar kort: hæðarlínum, skuggamyndun, jöklum, vötnum og hundruðum örnefna.

Svona virkar þetta:

  1. Veldu stærð og liti og fylltu út reitina hér til hliðar.
  2. Við teiknum kortið og sendum þér próförk í tölvupósti innan 2 virkra daga.
  3. Þegar þú hefur samþykkt próförkina er plakatið prentað og sent innan 3 virkra daga.

Ertu með GPX-skrá af leiðinni? Sendu hana á ragnarg2@gmail.com með pöntunarnúmerinu.

Kortagögn: Landmælingar Íslands (IS 50V, ÍslandsDEM) · © OpenStreetMap contributors. Myndirnar sýna Laugaveginn sem dæmi.

Próförk áður en prentað er

Gögn frá Landmælingum Íslands

Passar í staðlaða ramma

Um kortagögnin

Hæðarlínur og skuggamyndun eru reiknaðar úr hæðarlíkani Landmælinga Íslands (ÍslandsDEM). Jöklar, vötn, ár og örnefni koma úr IS 50V-gagnagrunni Landmælinga og vegir og gönguleiðir úr OpenStreetMap. Heimilda er getið á hverju korti.

Stærðir og prentun

A3: 29,7 × 42 cm.
50 × 70 cm: algengasta plakatstærðin á Norðurlöndum.

Plakatið er prentað eftir pöntun og passar í staðlaða ramma. Rammi fylgir ekki.

Afhending og skil

Við sendum próförk í tölvupósti. Þegar þú hefur samþykkt hana er plakatið prentað og sent upprúllað í sterkum hólki.

Þar sem kortið er gert sérstaklega fyrir þig er ekki hægt að falla frá kaupum eftir að prentun hefst. Sjá nánar í skilmálum.

Þér gæti líka líkað