Refund policy

Réttur til að falla frá kaupum

Þú getur fallið frá kaupum innan 14 daga frá móttöku vöru, í samræmi við lög nr. 16/2016 um neytendasamninga. Sendu okkur tilkynningu um það á veggmyndagerdin@veggmyndagerdin.is. Vöru skal skila óskemmdri og í upprunalegum umbúðum, og greiðir kaupandi kostnað við að skila henni. Við endurgreiðum kaupverð og upphaflegan sendingarkostnað innan 14 daga frá því að varan hefur borist okkur.

Persónugerð kort

Réttur til að falla frá kaupum á ekki við um persónugerð kort sem útbúin eru samkvæmt forskrift kaupanda (sbr. 18. gr. laga nr. 16/2016) eftir að kaupandi hefur samþykkt próförk og prentun er hafin.

Gölluð eða skemmd vara

Berist plakat gallað eða skemmt skaltu hafa samband innan 14 daga og senda mynd af gallanum. Við prentum þá nýtt eintak þér að kostnaðarlausu eða endurgreiðum vöruna. Um galla gilda lög nr. 48/2003 um neytendakaup.

Seljandi

Sundin blá ehf., kt. 670812-0730, Hraunhellu 3, 800 Selfoss. Sími 865 3639, netfang veggmyndagerdin@veggmyndagerdin.is.