Skilmálar

Skilmálar þessir gilda um kaup á vörum í vefversluninni Veggmyndagerðin, sem Sundin blá ehf. rekur. Með því að ganga frá pöntun samþykkir kaupandi skilmálana.

1. Seljandi

Sundin blá ehf., kt. 670812-0730
Hraunhellu 3, 800 Selfoss
Sími: 865 3639
Netfang: veggmyndagerdin@veggmyndagerdin.is
VSK-númer: 114455

2. Pantanir

Pöntun er bindandi þegar greiðsla hefur borist. Kaupandi fær staðfestingu á pöntun með tölvupósti. Seljandi áskilur sér rétt til að hætta við pöntun, t.d. vegna rangra verðupplýsinga, og er þá greiðsla endurgreidd að fullu.

3. Verð og greiðsla

Öll verð eru í íslenskum krónum og með 24% virðisaukaskatti. Sendingarkostnaður bætist við verð vöru og kemur fram áður en gengið er frá greiðslu.

4. Afgreiðsla og afhending

Vörur eru prentaðar eftir pöntun og sendar kaupanda svo fljótt sem kostur er. Áhætta af vöru flyst til kaupanda þegar hún er afhent kaupanda eða flutningsaðila sem kaupandi hefur valið.

5. Réttur til að falla frá samningi

Kaupandi getur fallið frá kaupum innan 14 daga frá móttöku vöru, í samræmi við lög nr. 16/2016 um neytendasamninga. Tilkynna skal seljanda um það með skýrum hætti, t.d. í tölvupósti. Vöru skal skila óskemmdri og í upprunalegum umbúðum. Kaupandi greiðir kostnað við að skila vöru. Seljandi endurgreiðir kaupverð og upphaflegan sendingarkostnað innan 14 daga frá því að vara hefur borist til baka.

Réttur til að falla frá samningi á ekki við um persónugerð kort sem eru útbúin samkvæmt forskrift kaupanda (sbr. 18. gr. laga nr. 16/2016) eftir að kaupandi hefur samþykkt próförk og prentun er hafin.

6. Gallar og kvartanir

Um galla gilda lög nr. 48/2003 um neytendakaup. Berist vara gölluð eða skemmd skal kaupandi hafa samband við seljanda eins fljótt og kostur er og senda mynd af gallanum. Seljandi prentar þá nýtt eintak kaupanda að kostnaðarlausu eða endurgreiðir vöruna.

7. Persónuvernd

Seljandi fer með persónuupplýsingar kaupanda, svo sem nafn, heimilisfang og netfang, eingöngu til að afgreiða pöntun og í samræmi við lög nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga. Upplýsingar eru ekki afhentar þriðja aðila nema þeim sem þarf til að afgreiða og senda pöntun.

8. Höfundarréttur

Hönnun kortanna er eign seljanda. Kortagögn eru frá Landmælingum Íslands og © OpenStreetMap contributors.

9. Lög og varnarþing

Um skilmála þessa gilda íslensk lög. Rísi ágreiningur sem ekki tekst að leysa í sátt getur kaupandi leitað til Kærunefndar vöru- og þjónustukaupa. Að öðru leyti skal mál rekið fyrir héraðsdómi á heimilisvarnarþingi seljanda.