Veggmyndagerðin býr til kortaplaköt af íslenskri náttúru: gönguleiðum, vötnum, fjöllum og þekktum stöðum.
Hvert kort er teiknað úr raunverulegum landslagsgögnum. Hæðarlínur og skuggamyndun koma úr hæðarlíkani Landmælinga Íslands, jöklar, vötn, ár og örnefni úr IS 50V-gagnagrunni Landmælinga og gönguleiðir úr OpenStreetMap. Á hverju korti eru hundruð örnefna, svo plakatið er bæði falleg veggmynd og nákvæmt kort af stað sem skiptir þig máli.
Hvert kort fæst í fjórum litaþemum og með fjórum áherslulitum, í stærðunum A3 og 50 × 70 cm.
Kortagögn: Landmælingar Íslands (IS 50V, ÍslandsDEM) · © OpenStreetMap contributors