Algengar spurningar

Fylgir rammi með plakatinu?

Nei, plakatið er sent án ramma. Það passar í staðlaða ramma í stærðunum A4, A3 og 50 × 70 cm.

Get ég fengið stærra plakat?

Já, öll kortin fást líka í 50 × 70 cm. Þú velur stærðina á vörusíðunni.

Hvaðan koma kortagögnin?

Hæðarlínur, skuggamyndun, jöklar, vötn og örnefni koma frá Landmælingum Íslands (IS 50V og ÍslandsDEM). Gönguleiðir, götur, vegir og stígar koma úr OpenStreetMap.

Hver er munurinn á litaþemunum?

Ljóst er bjart og kalt, Nótt er dökkt, Sandur er hlýr ljós tónn og Mosi grænleitur. Áherslulitur ræður lit leiðarinnar, vatnsins eða merkisins á kortinu. Á vörusíðunni sérðu mynd af hverri samsetningu.

Hvað tekur langan tíma að fá plakatið?

Plakötin eru prentuð eftir pöntun. Afhendingartími fer eftir þeim afhendingarmáta sem þú velur í körfunni. Sjá nánar á síðunni Afhending.

Get ég fengið kort af öðru svæði eða minni eigin leið?

Já. Veldu Þitt eigið kort, segðu okkur hvaða stað eða leið þú vilt og við sendum þér próförk áður en kortið er prentað. Ertu með GPX-skrá af leiðinni? Sendu hana á veggmyndagerdin@veggmyndagerdin.is.