Privacy policy

Sundin blá ehf., kt. 670812-0730, Hraunhellu 3, 800 Selfoss, rekur vefverslunina Veggmyndagerðin og er ábyrgðaraðili þeirra persónuupplýsinga sem unnið er með í tengslum við hana. Stefnan byggir á lögum nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga.

Hvaða upplýsingum er safnað

  • Nafn, heimilisfang, netfang og símanúmer sem þú gefur upp við pöntun.
  • Upplýsingar um pöntun, svo sem vörur, verð og afhendingarmáta.
  • Upplýsingar sem þú sendir okkur vegna persónugerðra korta, t.d. heimilisfang eða staðsetningu.
  • Tæknilegar upplýsingar, svo sem IP-tala og vafrakökur, sem verslunarkerfið (Shopify) safnar til að vefurinn virki.

Kortaupplýsingar fara beint til greiðsluþjónustu og eru hvorki vistaðar né sýnilegar okkur.

Tilgangur

Upplýsingarnar eru eingöngu notaðar til að afgreiða og senda pöntun, svara fyrirspurnum og uppfylla skyldur samkvæmt bókhaldslögum. Fréttabréf eru aðeins send þeim sem skrá sig sérstaklega á póstlista, og hægt er að afskrá sig hvenær sem er.

Miðlun til þriðja aðila

Upplýsingum er aðeins miðlað til þeirra sem þurfa á þeim að halda til að afgreiða pöntun: verslunarkerfisins Shopify, greiðsluþjónustu, prentsmiðju og flutningsaðila (Póstsins eða Dropp). Shopify kann að vista gögn utan Evrópska efnahagssvæðisins með stöðluðum samningsákvæðum.

Varðveisla

Upplýsingar um pantanir eru varðveittar í 7 ár vegna bókhaldsskyldu, en öðrum upplýsingum er eytt þegar þeirra er ekki lengur þörf.

Réttindi þín

Þú átt rétt á að fá aðgang að upplýsingum um þig, fá þær leiðréttar eða þeim eytt, og að andmæla vinnslu. Hafðu samband á veggmyndagerdin@veggmyndagerdin.is. Þú getur einnig sent kvörtun til Persónuverndar (personuvernd.is).