Þitt eigið kort
Verð með VSK. Rammi fylgir ekki.
Segðu okkur frá kortinu
Þú færð próförk í tölvupósti. Ekkert er prentað fyrr en þú hefur samþykkt hana.Gönguleiðin sem þið genguð saman, sumarbústaðurinn, fjallið sem þú kleifst eða gatan sem þú ólst upp við. Við teiknum kortið úr sömu landslagsgögnum og öll okkar kort: hæðarlínum, skuggamyndun, jöklum, vötnum og hundruðum örnefna.
Svona virkar þetta:
- Veldu stærð og liti og fylltu út reitina hér til hliðar.
- Við teiknum kortið og sendum þér próförk í tölvupósti innan 2 virkra daga.
- Þegar þú hefur samþykkt próförkina er plakatið prentað og sent innan 3 virkra daga.
Ertu með GPX-skrá af leiðinni? Sendu hana á ragnarg2@gmail.com með pöntunarnúmerinu.
Kortagögn: Landmælingar Íslands (IS 50V, ÍslandsDEM) · © OpenStreetMap contributors. Myndirnar sýna Laugaveginn sem dæmi.
Próförk áður en prentað er
Gögn frá Landmælingum Íslands
Passar í staðlaða ramma
Um kortagögnin
Hæðarlínur og skuggamyndun eru reiknaðar úr hæðarlíkani Landmælinga Íslands (ÍslandsDEM). Jöklar, vötn, ár og örnefni koma úr IS 50V-gagnagrunni Landmælinga og vegir og gönguleiðir úr OpenStreetMap. Heimilda er getið á hverju korti.
Stærðir og prentun
A3: 29,7 × 42 cm.
50 × 70 cm: algengasta plakatstærðin á Norðurlöndum.
Plakatið er prentað eftir pöntun og passar í staðlaða ramma. Rammi fylgir ekki.
Afhending og skil
Við sendum próförk í tölvupósti. Þegar þú hefur samþykkt hana er plakatið prentað og sent upprúllað í sterkum hólki.
Þar sem kortið er gert sérstaklega fyrir þig er ekki hægt að falla frá kaupum eftir að prentun hefst. Sjá nánar í skilmálum.