Hvaða stærð af plakati hentar?

Stærðir plakata: A4, A3 og 50×70 í ramma yfir sófa

Öll kortin okkar fást í þremur stærðum. Hér er stutt yfirlit til að hjálpa þér að velja.

A4 (21 × 29,7 cm)

Hentar á lítinn vegg, í hillu, á skrifborð eða í gang. A4 er líka gott þegar mörg kort hanga saman í röð. Algengur rammi er 30 × 40 cm með kartoni.

A3 (29,7 × 42 cm)

Vinsælasta stærðin. A3 nýtur sín yfir skenk, náttborði eða í stofu, og örnefnin eru vel læsileg. Algengur rammi er 40 × 50 cm með kartoni.

50 × 70 cm

Stórt kort sem fyllir vegginn, til dæmis yfir sófa eða rúmi. Það hentar vel stórum svæðum eins og löngum gönguleiðum, jöklum og landshlutum. Notaðu 50 × 70 cm ramma án kartons.

Í hvaða hæð á að hengja?

Góð regla er að miðja myndarinnar sé í augnhæð, um 145–150 cm frá gólfi. Yfir sófa eða skenk er gott að hafa 20–25 cm frá húsgagninu að neðri brún rammans.

Fylgir rammi?

Nei, kortin koma án ramma, upprúlluð í hólk. Þau passa í staðlaða ramma sem fást í flestum húsgagna- og ritfangaverslunum.

Skoðaðu línukortin, landslagskortin eða bæjarkortin.