Hljóðbylgjan þín
Skilaboðin þín
Myndin sýnir dæmi. Þegar þú hefur tekið upp birtist þín bylgja hér.
Verð með VSK. Rammi fylgir ekki. Sending með Dropp frá 890 kr., frí á afhendingarstað ef pantað er fyrir meira en 12.000 kr.
Sum orð viltu geyma. „Ég elska þig“ með röddinni hans afa, fyrsta orð barnsins, heitið ykkar á brúðkaupsdaginn eða hláturinn sem fyllir húsið.
Hér verður röddin að mynd. Hver rödd teiknar sína eigin bylgju, svo engin tvö plaköt verða eins.
Svona virkar þetta
1. Segðu það. Taktu upp skilaboðin hér á síðunni eða hladdu upp upptöku sem þú átt í símanum. Upptakan má vera allt að 15 sekúndur.
2. Veldu útlit og lit. Bylgjan getur verið súlur, heil bylgja, hringur eða landslag, þar sem hvert orð rís eins og fjall með hæðarlínum. Veldu svo þann lit sem fer best heima hjá þér.
3. Skrifaðu texta undir myndina. Undir bylgjunni er pláss fyrir texta, til dæmis orðin sjálf: „Ég elska þig“. Þar fyrir neðan má hafa undirtexta með smærra letri, svo sem nöfnin ykkar og dagsetninguna. Þú ræður hvort þú notar annað, bæði eða hvorugt.
4. Sjáðu myndina. Plakatið birtist um leið hér á síðunni, og þannig prentum við það.
Upptakan sjálf verður eftir hjá þér. Við fáum aðeins lögun bylgjunnar.
Prentað eftir pöntun
Upptakan verður eftir hjá þér
Passar í staðlaða ramma
Stærðir og prentun
A4 (21 × 29,7 cm): fallegt í 30 × 40 cm ramma með kartoni. Hentar á ganginn, í hillu eða í hóp með fleiri myndum.
A3 (29,7 × 42 cm): fallegt í 40 × 50 cm ramma með kartoni. Góð stærð yfir skrifborði eða kommóðu.
50 × 70 cm: passar beint í 50 × 70 cm ramma. Nýtur sín yfir sófanum eða skenknum.
Ráð: hengdu myndina svo neðri brún rammans sé 20–25 cm ofan við sófabakið eða skenkinn. Á berum vegg er miðja myndarinnar fallegust í um 150 cm hæð.
Plakatið er prentað eftir pöntun og passar í staðlaða ramma. Rammi fylgir ekki.
Afhending og skil
Plakatið er sent upprúllað í sterkum hólki. Sending með Dropp: á afhendingarstað frá 890 kr. eða heim að dyrum frá 1.410 kr. Sending á afhendingarstað er frí ef pantað er fyrir meira en 12.000 kr. Endanlegt verð kemur fram í körfunni.
Þar sem myndin er gerð sérstaklega fyrir þig er ekki hægt að falla frá kaupum eftir að prentun hefst. Sjá nánar í afhendingu og skilmálum.