Gjafir handa göngufólki

Laugavegurinn – gönguleiðakort í ramma í forstofu

Fólk sem gengur á fjöll á yfirleitt nóg af útivistarfötum. Það sem fáir eiga er minning um gönguna á veggnum: kort af leiðinni sem það gekk eða fjallinu sem það stóð á.

Leiðin sem þið genguð saman

Gönguleiðakortin sýna leiðina í lit, skálana á leiðinni og örnefnin í kring. Vinsælust eru Laugavegurinn, Fimmvörðuháls og Kjalvegur hinn forni. Fyrir þann sem stóð á hæsta tindi landsins er Hvannadalshnúkur góð gjöf. Allar leiðirnar eru í safninu Gönguleiðir.

Fjallið sem hann eða hún gekk

Ef þú veist hvaða fjall skiptir máli er fjallakort eða línukort af því persónuleg gjöf. Línukortin sýna aðeins hæðarlínur fjallsins og passa vel í stofu eða svefnherbergi. Esja er vinsælust, bæði sem línukort og fjallakort, en Herðubreið, Kirkjufell og Skjaldbreiður eru líka vinsæl.

Svæðið sem viðkomandi gengur um ár eftir ár

Sumir ganga sama svæðið aftur og aftur. Þá hentar kort af heilu fjalllendi, til dæmis Hornstrandir, Fjallabak eða Esja og Kjós. Þau eru í safninu Fjalllendi.

Leið sem er ekki til í búðinni

Ef leiðin eða staðurinn er ekki til teiknum við það sérstaklega. Veldu Þitt eigið kort, segðu okkur frá staðnum og við sendum próförk áður en kortið er prentað.

Stærð og rammi

Kortin fást í A4, A3 og 50 × 70 cm og í nokkrum litum. Rammi fylgir ekki. Ef þú ert óviss um stærðina skaltu lesa hvaða stærð hentar.

Síðasti pöntunardagur fyrir jól er 22. desember.