Tindfjöll – línukort
Verð með VSK. Rammi fylgir ekki. Sending með Dropp frá 890 kr., frí á afhendingarstað ef pantað er fyrir meira en 12.000 kr.
Prentað eftir pöntun
Gögn frá Landmælingum Íslands
Passar í staðlaða ramma
Tindótt fjöll með jökli inn af Fljótshlíð, hæst Ýmir.
Hrein form fjallsins, ekkert annað. Látlaus og falleg mynd fyrir þann sem hefur staðið á toppnum, og passar í stofuna, svefnherbergið eða á skrifstofuna. Neðst eru hnit og hæð tindsins. Fæst í sex litum og þremur stærðum.
Teiknað úr hæðarlíkani Landmælinga Íslands (ÍslandsDEM)
Um kortagögnin
Hæðarlínur og skuggamyndun eru reiknaðar úr hæðarlíkani Landmælinga Íslands (ÍslandsDEM). Jöklar, vötn, ár og örnefni koma úr IS 50V-gagnagrunni Landmælinga og vegir og gönguleiðir úr OpenStreetMap. Heimilda er getið á hverju korti.
Stærðir og prentun
A4 (21 × 29,7 cm): fallegt í 30 × 40 cm ramma með kartoni. Hentar á ganginn, í hillu eða í hóp með fleiri myndum.
A3 (29,7 × 42 cm): fallegt í 40 × 50 cm ramma með kartoni. Góð stærð yfir skrifborði eða kommóðu.
50 × 70 cm: passar beint í 50 × 70 cm ramma. Nýtur sín yfir sófanum eða skenknum.
Ráð: hengdu myndina svo neðri brún rammans sé 20–25 cm ofan við sófabakið eða skenkinn. Á berum vegg er miðja myndarinnar fallegust í um 150 cm hæð.
Plakatið er prentað eftir pöntun og passar í staðlaða ramma. Rammi fylgir ekki.
Afhending og skil
Plakatið er sent upprúllað í sterkum hólki. Sending með Dropp: á afhendingarstað frá 890 kr. eða heim að dyrum frá 1.410 kr. Sending á afhendingarstað er frí ef pantað er fyrir meira en 12.000 kr. Endanlegt verð kemur fram í körfunni.
Þú getur fallið frá kaupum innan 14 daga. Sjá nánar í afhendingu og skilmálum.